Fara í efni

Nýr fræðslufulltrúi Norðurþings

Búið er að ráða nýjan fræðslufulltrúa hjá Norðurþingi

Nýr fræðslufulltrúi er Jón Höskuldsson deildarstjóri í Borgarhólsskóla á Húsavík.

Alls sóttu tólf aðilar um stöðuna og var ráðningin í höndum Capacent.

Jón mun taka til starfa eins fljótt og hægt er þar sem fráfarandi fræðslufulltrúi, Erla Sigurðardóttir er farin til annarra starfa. Hún mun þó styðja við bakið á arftaka sínum eins og þurfa þykir á næstu vikum. 

Um leið og Norðurþing þakkar Erlu fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins býður það Jón velkominn til starfa.